Heimasíða Svanhvítar Sjafnar

Velkomin/nn á heimasíðu Svanhvítar Sjafnar

07.06.2007 11:41:54 / svanhvit

Hætt !

Ég ætlaði bara að láta þessa einu manneskju sem kíkir hérna inn á dag vita að það mun ekki koma neitt nýtt hér inn...síðan er dauð!

Kannski mun ég stofna síðu seinna....


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 14:08:31 / svanhvit

Þessi er soldið góður :)

Black man says "did you ever hear the poem;  A white man talks to a black man"?
white man thought to himself  "uh no"
black man started sayin the poem:
 

..."when I was born, I was  black
- when I'm in the sun, I'm
black
- when I'm cold,  I'm
black
- when I'm sick, I'm
black
- when I'm old, I'm
black
- when I die, I'm
black...but you on the

other hand...


- When you were born, you were
pink

- when you're out in the sun, you're
red
- when you're cold, you're
blue
- when you're sick, you're
green
- when you're old, you're
grey
- when you die, you're
purple ..."
 

"AND YOU DARE TO CALL ME C O L O R E D ?!?!?!"  


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 12:17:43 / svanhvit

Frá ferðinni

Skemmtileg ferð á enda þrátt fyrir að við töpuðum báðum leikjunum. Leikurinn okkar á móti Ítalíu var mjög góður og það var virkilega gaman að spila hann!

 Það sem einkenndi stelpurnar á leiðinni:

Unnur: AAAAAAAAAAAAAAAA AAAAAAAA HJÁÁÁLPPPP, FISKIFLUGA !!!!!!!!! AAAAAAAAAAAAA!!!!!! OJJJJ !!

Helena: Hvað gefiði mér ef ég borða þessa pöddu?????

Ifeoma: Yeah sure, i´ll dance with this guy for 60 euros !!!

 Sigrún: KURVA BLEDZ !

Guðrún: Sigrún DRÍFÐU þig !

Sara: Það er bara VISA á þetta :)

Kristrún: Þessi gella hefur ekkert í mig, ég er sko alveg jafn mössuð og hún:) ( umrædda kona skornari en mestu fitnessgellurnar)

Ragna Margrét: Allt í lagi þá, ég skal bera töskurnar fyrir ykkur !

Ég verð að segja frá tveimur snilldaratriðum:

Við vorum að borða á hótelinu í Frakklandi og fengum e-ð salatsull í forrétt. Allt í einu kippist Bára við! Þá var hún með eitt stykki maríubjöllu eða e-ð svart ógeð í salatinu sínu. Það var ekki mikið borðað af salati eftir það, en allt í einu segir Helena: Hvað gefiði mér ef ég borða pödduna? Og ég er að segja ykkur það að hún var næstum búin að éta hana, enda vorum við búnar að gefa 7 evrur undir á mann, því að ég hefði sko viljað sjá þetta!!! En eins og vanalega þá guggnaði Helena á veðmálinu og ég fór sár í rúmið það kvöld :(

Daginn eftir fórum við í miðbæ Montpellier bara svona að skoða, það var æðislegt veður og við settumst niður á kaffihúsi sem var á torgi þarna. Á toginu var maður að spila á gítar og syngja og það var skemmtileg steming að sitja og hlusta. Þetta var svona einn af þessum með hattinn fyrir framan að vona að fólk gefi honum pening. Ekki nóg með það , þá var líka annar karl í ,,samstarfi" með honum. Hann sá um það að dansa við lögin hans. Þetta var einn mest sleezy gæi sem ég hef séð, örugglega ógeðslega skítugur og sveittur og svo kveikti hann sér annað slagið í jónunni sinni. Allavega, hann var einn í sínum heimi bablandi út í loftið og svona að vonast til að e-r kæmi að dansa við hann. Helena var greinilega e-ð blönk þessa ferð af því að hún var alltaf að bjóðast til þess að gera e-a skandala fyrir pening: ,,Hvað gefiði mér ef ég fer að dansa við þennan karl við eitt lag"? Við bjuggumst við því að það yrði góð skemmtun fyrir okkur þannig að við sögðum öll ætla gefa 5 evrur á mann. Sem var slatti þegar upp var staðið. Það endaði með því að Helena guggnaði á þessu þannig að við reyndum að fá e--a aðra til að gera þetta. Engin virtist þora, NEMA Ifeoma. Gústi spurði hana og hún sat sallaróleg við borðið sitt og sagði bara: For 60 euros? Yeah sure, i´ll dance with him for 60 euros ! Þetta var eitt það fyndnast sem ég hef séð á löngum tíma ! Þessi karl var ógeðslegur og svo var hann að dansa bara e-ð svona út í loftið og Fomie hermdi bara eftir honum. Svo spurði hann hana hvort hann mætti kyssa Fomie eða bara fara heim með henni fyrir 10 evrur ! HAHAHAHAH! OJJJ!!!

Kv. Mademoiselle,

Svanhvít Sjöfn


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 13:35:05 / svanhvit

Frakkland og Ítalía

Á laugardagsmorgun leggjum við af stað til Frakklands, ferðumst frá París til Montpellier og spilum á mánudag við franska liðið og á þriðjudeginum eyðum við deginum í að ferðast niður til Parma á Ítalíu og keppum leikinn við þær á miðvikudaginn. Komum svo heim á fimmtudegi. Þannig að þetta verður ágæt keyrsla á okkur og soldið erfiður tími skólalega séð en maður verður bara að reyna að spíta í lófana og lesa í rútunni og svona:)

- Eftir Keflavíkurleikinn sem við spiluðum á Ásvöllum á sunnudaginn kom lyfjaeftirlitið og ég, Helena og Hanna vorum dregnar til að fara í lyfjapróf....það var mjög svo skemmtilegt, þurftum að pissa í glas fyrir framan huggulega konu og sulla svo pissinu þarna e-ð út um allt í e-ar dollur....Ægilega gaman. Hanna greyið var ekki alveg eins til í þetta og við hinar og þurfti gellan að horfa á hana í sturtu og svona á meðan að Hanna var að reyna að telja sér trú um að það væri ekkert mál að pissa fyrir framan hana! :D

- Í kvöld erum við að fara að keppa við ÍS á Ásvöllum kl.19.15 !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 22:30:27 / svanhvit

Fyrsti Evrópuleikurinn !!

Á fimmtudagskvöldið munum við Haukastelpurnar spila fyrsta leikinn okkar í Evrópukeppninni á Ásvöllum á móti Gran Canaria kl.19.15 !!!!

Ég hvet alla til að koma og styðja okkur stelpurnar, nú veitir okkur ekki af stuðning :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 16:14:12 / svanhvit

Una Lind Hauksdóttir 19 ára

Una Lind Hauksdóttir átti afmæli í gær, þann 18.október. Í tilefni þess ætla ég að skrifa aðeins um hana Unu mína og leyfa ykkur að heyra hversu góð vinkona hún er !

  Ég og Una höfum þekkst síðan í 2.bekk í grunnskóla. Í ófá skipti höfum við rætt um þennan skemmtilega dag þegar Una kom í skólann. Hún átti heima á Rifi áður en hún flutti á Patró. Á þessum árum var ég á svokölluðu ,,fýlu/frekju" stigi held ég og hef ábyggilega ekki verið sú skemmtilegasta. Í frímínútunum sjáum við þessa nýju stelpu sem labbar upp að skólalóðinni, við vissum að hún var að fara að koma í bekkinn okkar. Við hlaupum upp að henni og ég örugglega þar fremst í flokki: ,,Viltu leika?". Ég man eftir því að Anna Stefanía bað hana um að sitja við hliðina á sér og ég varð þvílíkt afbrýðisöm að nýja stelpan vildi ekki sitja við hliðina á mér!! Eftir þetta varð Una ekkert laus við okkur og höfum við gert margt skemmtilegt og örugglega margt leiðinlegt saman síðan á þessum tíma:)

Í öll þessi ár sem að ég og Una höfum verið vinkonur þá man ég ekki eftir einu einasta skipti sem við höfum rifist eða verið fúlar út í hvor aðra(eða ég hef allavega ekki orðið fúl útí hana, vona að það sé öfugt), bara ALDREI ! Ég mundi segja að það væri nokkuð gott !!!

Una hefur alltaf verið rosalega barngóð og það er ótrúlegt hvað hún getur dundað sér og leikið sér með börnunum, hún hefur alltaf verið hluti af fjölskyldunni og þá sérstaklega þykir mér vænt um hvað hún og Pálmi Snær litli bróðir eru góðir vinir. Það var alveg ótrúlegt að frá því að Pálmi var lítill hefur hann alltaf dýrkað Unu, hann sagði alltaf: ,,Una er konan mín" og ætlaði sko að giftast henni! Það er ekki sjaldan sem það gerist að ef að Una kemur í heimsókn þá ,,leikur" hún meira við Pálma og Guðnýju en mig, sem mér finnst samt bara æðislegt:P

Una er líka rosalega traustur vinur og það er hægt að treysta henni fyrir öllu! Ég man líka hvað ég var rosalega stressuð þegar að við vorum búnar að ákveða það að þær (Una og Anna) færu í Menntaskólann á Laugarvatni og ég í MS í bænum. Ég hefði pottþétt farið á Laugarvatn með þeim hefði ég ekki verið í körfunni....Mér fannst þetta rosalega erfitt fyrst, ég saknaði þeirra alveg hrikalega mikið! Við vorum vanar að hanga saman á hverjum einasta degi á Patró og svo vorum við nottla saman í bekk líka. Ég er alveg jafn góð vinkona þeirra ennþá þrátt fyrir smá fjarlægð á veturna og það kannski styrkir vináttuna bara ennþá meira af því að á sumrin erum við alveg límdar saman;)

Til hamingju með afmælið elsku Una mín:) Hlakka svo til að hafa þig hjá mér um helgina:P

 

 

Svanhvít Sjöfn vælandi...:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 12:44:29 / svanhvit

Powerade-meistarar !

Ég hélt smá partý heima eftir að við urðum Powerademeistarar, þetta eru myndirnar hennar Helenu:)

Helena og Unnur

Helena og Kevin( einn af atvinnumönnunum í mfl kk, þeir leigja niðri hjá okkur)

Sigrún og Roni (hinn vitleysingurinn;) )

Halló halló, hvaða gellur eru þetta?!?

Helena og ég :)

Kristrún að gretta sig og Helena að vera sæt:)

Félagar !

Ifeoma(kaninn okkar, sem leigir líka hjá okkur), Bára, Roni og Helena

Pálína, Kevin and Thelma :P

Sigrún og Hanna

Pálí

Unnur, Ifeoma og Bára skvísur !

Þetta er besta myndin:) Sara að fá sér súp úr bikarnum stóra !!

Sara og Guðný

Kristín og ég

Sara og Helena

Ifeoma og Guðrún


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 14:15:33 / svanhvit

Sunnudagurinn sæli !

Jæja, nú er hrikalega langt síðan skrifað var seinast. Það er svo rosalega mikið búið að vera í gangi og BRJÁLAÐ að gera þannig að ég ætla að skrifa hluta af þessu í svona punktum;

- Við erum fluttar í Hafnafjörð í íbúð sem er mitt á milli Flensborg og Ásvalla

- ÞVÍLÍKUR munur að búa á sama stað og bæði skóli og æfingar eru á ! Vááá, loksins :)

- Ég er byrjuð í Flensborg og líkar það bara mjög vel, það sem komið er allavega:)

- Ég og Guðný fórum líka í körfubolta-akademíu sem er samstarf á milli Hauka og Flensborg

- Það þýðir að við erum á morgunæfingum fyrir skóla 3svar í viku og lyftingum 3svar í viku + 1 sinni, með akademíunni. Svo verða teknir bóklegir áfangar líka sem tengjast íþróttum og svona, en þar sem að ég á að útskrifast í vor þá tek ég örugglega ekkert af þeim áföngum

- Haukaæfingarnar byrjaðar á fullu ! Þá meina ég fullu :)

- Læra? já, ég geri það á meðan ég er sofandi:) Sofandi? já, ég geri það á meðan ég er að æfa :) nei egi svona.... :P

- Hnén á mér eru ekki alveg að hlýða mér þessa dagana, e-r leiðindi í þeim báðum, vonum að þau fari að vera stillt !!

- Í dag var frí frá æfingum þannig að það er bara gjörsamlega legið í leti og reyndar lært líka;)

Núna eru allir að verða tvítugir, Þóra vinkona átti afmæli 5.sept og hélt hún smá teiti og það var bara rosa gaman. Lilja sætasta varð svo tvítug núna á föstudaginn 15.sept og kom gellan í bæinn og hélt sko aldeilis veisluna fyrir mig, Unu og Önnu. Þetta var æðislegt !!!

Ég var að keppa æfingaleik niðrí KR-heimili, brunaði síðan heim og gerði mig til á no-time, þá var Una hérna heima og við vissum að Lilja og Anna kæmu að sækja okkur,eða semsagt bróðir hennar Lilju að keyra. Við biðum rosa spenntar af því að við vissum að við værum að fara e-ð surprise út að borða! Heyrðu, svo hringir Lilja og alveg, já er þetta ekki Birkihvammur 8 og segist vera alveg að koma. Svo stend ég útí eldhúsglugga og sé allt í einu limmósínu keyra framhjá. Haldiði ekki að gellan hafi komið að sækja okkur á limma,hehehe! Ég og Una hlupum út eins og 10 ára smástelpur og í bílnum sátu Lilja og Anna í góðum fíling. Svo keyrðum við niðrí bæ og enduðum fyrir utan Skólabrú !!!! ÞAr var tekið á móti okkur og ummm ummm ummm, yndislegur matur sem við fengum. ÞEtta var æðislega kvöld. Þegar við vorum búnar að borða og allar þvílíkt saddar og sælar og þá vonandi sérstaklega Lilja (af því að við gáfum henni líka æðislega gjöf) þá skutlaði Lilja mér heim með taxa en Una og Anna kíktu aðeins út á lífið niðrí bæ:)

Takk fyrir mig Lilja:*

Ein gömul mynd af mér og Helenu og ég með lessuklippinguna góðu !!! ( ekki fordómar, pálína kom með þessu fyndnu staðreynd:) )


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 13:13:17 / svanhvit

Helgin í grófum dráttum...

- Mikið sofið

- Mikið borðað

- Of mikið borðað

- Of mikið sofið (una?)

- Nudd

- Spjall

- Pjöllujeppinn varð að fá smá athygli eins og svo OFT áður !

Nú tekur bara seinasta vinnuvikan við, átak og niðurpakkning og svoleiðis skemmtilegheit:!:

Svanhvít Sjöfn sem er ekki alveg að nenna að skrifa of mikið....


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 10:59:02 / svanhvit

Föstudagurinn 11.ágúst

Senn líður sumarið á enda og eftir þennan dag á ég bara eina viku eftir í vinnunni !

Um helgina ætlum við fjölskyldan (Svanhvít, Guðný, Una, Elva og Lilja) að fara á Hlaðseyri, þar ætlum við að slappa þvílíkt af; sofa, borða, liggja í leti, spila og spjalla. Ummmm ummm ummm:) 

Ég færi fréttir af hvernig fjölskyldulífið tókst svo strax eftir helgi;)

Anna Stefanía kemur svo á sunnudaginn og verður alla næstu vika hérna fyrir vestan eða þangað til að hún fer í skólann. Það verður gaman að fá hana!

Eyjar voru náttúrulega bara þvílíkt stuð :) Og að sjálfsögðu stefnir maður að því að fara aftur að ári og taka þá allt fólkið frá Patró og mynda heiljarinnar stemningu:!:

Hef ekk meira að segja í bili,

Góða helgi!

Svanhvít pabbi Sjöfn Skjaldardóttir


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 15:08:31 / svanhvit

Nú ætla ég að fara út til Eyja,út til Eyja, út til Eyja :)

Jæja, þá fer maður að leggja af stað eftir vinnu, ég tek Baldur kl.19.30 þannig að maður verður ekki kominn fyrr en seint á Hvolsvöll. Ég ætla að gista þar hjá Önnu og Jóa. Flugið á að fara um 10 leytið í fyrramálið og það er eins gott að það verði flogið :)

Núna er hægt að blogga beint úr símanum þannig að ég ætla pottþétt að fá að taka myndir úr e-m síma(af því að ég er ekki með myndavélasíma) og senda inn myndir. Þá geta þeir sem hanga inni í tölvunni um helgina séð hvenig stemningin er !! Þ.á.m. mamma og pabbi sem eru ekki búin að láta mig í friði í vikunni með yfirlýsingum um að það eigi eftir að vera brjálað veður, rok og rigning. Ég læt það ekki stoppa mig,ekki frekar en allir hinir 5000 vinir mínir sem mæta þarna líka ;)

GÓÐA HELGI OG SKEMMTIÐI YKKUR VEL,ÉG VEIT AÐ ÉG Á EFTIR AÐ GERA ÞAÐ !! :D

Svanhvít Sjöfn


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 14:28:04 / svanhvit

Mobile

Prufa

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 12:24:51 / svanhvit

Loksins !

Loksins nennir maður að henda inn einni færslu hérna !

Það er svosem nóg búið að vera í gangi seinustu daga. Ball og grillpartý þarseinustu helgi og svo núna um helgina hélt Lilja innflutningspartý í skúrnum hjá sér en svo var partýið fært út á bílastæði þegar fleira fólk kom og leið og kvöldið :) Mjög skemmtileg stemning....

Núna styttist í Þjóðhátíð og ég vona að í þetta skiptið hafi Siggi stormur rétt fyrir sér af því að hann spáir hinu ágætasta veðri um helgina um allt land. Ég ætla nú samt að taka með mér góð pollaföt, er meira að segja búin að redda mér sjóstakki :!: Bara svona til vonar og vara....

Sumarið styttist og ég verð að segja að þetta sumar kom mér mikið á óvart. Ég er búin að hafa það rosa gott hérna fyrir vestan og við krakkarnir erum búin að bralla margt skemmtilegt saman :) Það er alveg ótrúlegt hvað manni líður vel hérna heima, maður heldur alltaf að maður sé orðin svo borgarvænn en sveitastelpan er greinilega alltaf í manni :P

 

Jæja, kem með færslu bráðlega aftur :)

Svanhvít Sjöfn sveitastelpa


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 09:46:03 / svanhvit

Treflar ???

Spurning um að fjárfesta kannski í svona í staðinn fyrir sílikon ? ?


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9